Næsta season
29.07.2009
11 ummæli
Sælir félagar,
Nú er ágúst að ganga í garð og tími til kominn að fara ákveða hvort við ætlum að vera með á næsta tímabili. Ég er allavega klár með mín 4-5 stig í leik, veit ekki hvort það nægi nema við bætum vörnina talsvert.
Síðasta tímabil var mjög skemmtilegt og árangurinn stóð ekki á sér. Þetta er hinsvegar frekar dýr pakki fyrir fámennan hóp og verður varla ódýrara núna í vetur. Það á væntanlega eftir að reynast ómögulegt að fá styrktaraðila og því fellur allur kostnaðurinn á leikmenn.
En þá er bara að byrja leysa þann vanda. Finna fleiri leikmenn sem skipta þessu á milli sín og fara hugsanlega í einhverjar smávægilegar fjáraflanir.
En fyrsta mál á dagskrá er að ákveða hvort og hverjir ætla vera með
Leider,
Popparinn
Categories: Félagið
Nýleg ummæli