Forsíða > Félagið > Næsta season

Næsta season

Sælir félagar,

Nú er ágúst að ganga í garð og tími til kominn að fara ákveða hvort við ætlum að vera með á næsta tímabili. Ég er allavega klár með mín 4-5 stig í leik, veit ekki hvort það nægi nema við bætum vörnina talsvert.

Síðasta tímabil var mjög skemmtilegt og árangurinn stóð ekki á sér. Þetta er hinsvegar frekar dýr pakki fyrir fámennan hóp og verður varla ódýrara núna í vetur. Það á væntanlega eftir að reynast ómögulegt að fá styrktaraðila og því fellur allur kostnaðurinn á leikmenn.

En þá er bara að byrja leysa þann vanda. Finna fleiri leikmenn sem skipta þessu á milli sín og fara hugsanlega í einhverjar smávægilegar fjáraflanir.

En fyrsta mál á dagskrá er að ákveða hvort og hverjir ætla vera með

Leider,
Popparinn

Categories: Félagið
  1. vaffarinn
    29.07.2009 klukkan 16:45 | #1

    Sælir.

    Reikna ekki með að vera með í vetur þar sem ég verð að þjálfa flest öll kvöld og mikið um helgar þegar leikir eru. Ég á reyndar eftir að setja saman æfingatöflu hjá Val fyrir veturinn þannig að ég get svarað þessu betur í næstu viku en ég er ekki bjartsýnn á þetta þar sem að helgarnar fara mikið í það að stjórna leikjum og þ.a.l. gæti ég lítið spilað með.

  2. Di Livio
    29.07.2009 klukkan 20:18 | #2

    Ég er heitur fyrir komandi tímabil, ef skrokkurinn verður í lagi þá mun ég vera með…

  3. Frikkelhoff
    29.07.2009 klukkan 23:35 | #3

    ég verð því miður ekki með…. ég verð að öllum líkindum á akureyri næsta vetur…. þið getið samt talað við mig ef þið þurfið að keppa í dalvík :P

  4. Hjalti
    30.07.2009 klukkan 18:34 | #4

    Ég er ga(y)me í næsta tímabil. Það verður mikill missir af þeim Frikka Weishappel Frikkelhoff Löwe Bridde McDoorknob og Leðrinu. En maður vonar það besta og að þeir geti verið með. Vonandi ná allir að staðfesta sem fyrst. Ef það verða fáir með þá fer maður að njósna á playgroundunum áður en sumarið er búið.
    LOVE and PEACE!

  5. Þjálfi
    2.08.2009 klukkan 07:02 | #5

    ég verð að sjálfsögðu með, veit líka um nokkra sem vilja ólmir ganga til liðs við okkur. Spurning hvort vaffarinn bæti okkur ekki inn í æfingatöfluna hjá sér:)

  6. Popparinn
    4.08.2009 klukkan 10:57 | #6

    Sælir,
    Það þarf að fara ákveða eitthvað því ég þarf að fara senda póst um að leigja æfingahúsnæðið aftur.
    Er ekki bara málið að hittast og ræða þessa hluti og hugsanlega nýliða í hópinn.
    Hvenær geta menn hist, ég get skaffað húsnæði.

    Einnig væri gaman að heyra í restinni af liðinu, Hrannar, Reynar, Kjartan og einhverjir fleiri.

  7. Ólafur
    10.08.2009 klukkan 19:49 | #7

    Ég er opinn fyrir því að vera með en bara ef við náum ágætis fjölda í hópinn. Finnst það alveg crucial. Það er leiðinlegt að vera í þessu ef það næst ekki í 10 manns á hverja æfingu og eins er það mun dýrara fyrir alla. Eins og við vitum allir (af gefinni reynslu undanfarinna ára) þá er þetta ekki í forgangi hjá mönnum og það komast aldrei allir á æfingu eða leik. Þ.a. ég mælist til þess að negla niður allavega einhverja 14 manns t.d. sem ætla að vera með í vetur. Mér finnst við heldur ekki vera í neinni svakalegri aðstöðu til að vera að pikka út eða hafna einhverjum sem hafa áhuga á að vera með og hafa gaman af því. Í mínum huga er bara því fleiri því betra (af gefinni reynslu, eins og áður kom fram). Beggers can’t be choosers. Þetta er líka ekki ókeypis hobbý, allavega ekki ef það eru bara einhverjir 8 eða 10 sem borga svo fyrir partýið. Til dæmis þessir sem hafa verið að kíkja á æfingar hjá okkur mjög reglulega, og jafnvel betur en fullgildir meðlimir (ekki samt Hjalti sem er full-gildan með lim og mætir vel). Þeir ættu bara að vera skráðir í félagið, mæta líka í leiki, partý og allt klabbið og svo borga eins og aðrir. Æfingahúsnæðið er líka annar af dýrustu kostnaðarliðunum (ekki satt Arnar Logi?).

    Kostnaðurinn. Ég myndi vilja láta greiða fyrirfram – ÁÐUR en tímabilið byrjar – og ef ekki er búið að greiða fyrir ákveðinn tíma (t.d. 1. september eða 1. október) þá er svo litið á að viðkomandi ætli ekki að vera með og þá þarf að finna staðgengil, þar til við náum eftirsóttum fjölda. S.s. að þegar tímabilið byrjar þá sé þessi hópur allur búinn að greiða og klár í slaginn. Minnkar líka allt vesen fyrir okkar kæra gjaldkera sem af óskiljanlegum ástæðum nennir ennþá að standa í þessu fyrir okkur hina. Mínar 2,55 krónur.

  8. Kjartan
    12.08.2009 klukkan 15:46 | #8

    Ég og Kiddi verðum með

  9. Popparinn
    13.08.2009 klukkan 09:45 | #9

    Þá eru þetta orðnir
    Arnar
    Hjalti
    Óli
    Laugi
    Hemmi
    Kjartan
    Kiddi

    Alveg heilir 7 sem hafa staðfest þátttöku.
    Hvað með Hrannar, Reynar, Hemma grundara?
    Svo þurfum við 3-4 í viðbót við þá.

  10. Popparinn
    14.08.2009 klukkan 13:25 | #10

    Sælir,

    Ég sé ekki fram-á að það náist að manna liðið fyrir veturinn og því útlit fyrir að við verðum ekki með. Ég kem til með að senda póst vegna æfingahúsnæðisins á mánudagsmorgun, þannig að við höfum bara helgina til að redda þessu.
    En þetta reddast ekki af sjálfum sér, muniði það!

  11. Nemi
    19.08.2009 klukkan 11:09 | #11

    Ég væri klár í þetta ef ég væri ekki enn þá fatlaður frá því í fyrra. Er ekki enn þá búinn að fara í aðgerðina vegna slitins krossbands en fer núna í lok sept. að láta laga þetta. Vona nú samt að þetta reddist hjá ykkur í vetur og að þið haldið áfram að gera góða hluti í 2. deildinni. Spurning hvort maður komi svo bara sterkur inn á næsta ári eftir fkn 8 mánaða endurhæfingu!

  1. No trackbacks yet.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.