Prófíllinn á Arnari Loga
1. Nafn (fullt nafn og viðurnefni): Arnar Logi Elfarsson, Popparinn
2. Aldur og fæðingarstaður: 25 ára, Stykkishólmi 1982
3. Hæð og þyngd: 179,7cm og 76 kg.
4. Staða: Bakvörður, skotbakvörður (minus skot)
5. Hjúskaparstaða: Trúlofaður og bráðum pabbi.
6. Áhugamál: Körfubolti, golf, ”útivera”
7. Fallegasti meðlimur Brokey: Popparinn for sure
8. Ruglaðasti meðlimur Brokey: Allt fínir strákar, en þessi Hemmi hlýtur að vera ruglaðastur
9. Stærsta stund ferils þíns: Skaut og hitti með annarri hendinni móti einhverju liði um daginn! Ekki tveggja handa skot, heldur bara með annarri!!
10. Þinn besti leikur með Brokey: Móti Keflavík B einhverntímann um árið. 15 stig og yfir 0-inu í framlagi… usss
11. Best klæddi leikmaður Brokey: Hjalti… maður verður nú að gefa honum eitthvað!!
12. Hvað gerir þú fyrir liðið (utan jafnt sem innan vallar): Gjaldkeri, tölfræðingur, reddari utan vallar. (blank) innan vallar!
13. Fyrri lið: Snæfell og HSH.
14. Hvernig bíl áttu og hefur átt í gegnum tíðina: Átti hér Toyota Carinu 1988 módel sem foreldrarnir splæstu í glænýjan úr kassanum á sínum tíma. Verst fannst mér að vera ekki með bílpróf þegar þau áttu lödu-sportið samt. Ek núna sama bíl og allar kellingar yfir 73 ára aldri í borginni skv. Nýjustu könnunum. Toyota-corolla ”blá-fjólublá” með spoiler.
Uppfært: Brand New Toyota Avensis, auvidda með spoiler.
15. Ef þú gætir verið einhver fræg manneskja í einn dag, hver væri það og af hverju: Væri maðurinn hennar Amy Winehouse… telst það með? Að eiga fræga konu? Og ástæðan… hún er örugglega svo blíð og góð stelpa með hausinn í lagi.
16. Hver er mesti djammarinn í Brokey: Hjalti og Frikki
17. Mottó/lífsreglur: Ef spilar þú bolta með Brokey þá hlýtur þú að vera ókey!
18. Hvaða leikmaður Brokey heldurðu að sé bestur í rúminu og af hverju: Eini sem ég veit til að hefur brotið rúm þegar leikar stóðu sem hæst… nafnið segi ég ekki!!
19. Hvað grætir þig? Þegar Hemmi öskrar!! Hemmi!! Ég stíg alveg stundum út… bara er ekki með HENDUR!!!
20. Hvaða lag lýsir þér best (rökstyðja með textabroti): Don’t look back in anger með Oasis. Ég verð að fara vera rólegri í skapinu!
Uppáhalds?
– Kvikmyndir: Dumb and dumber, Casino RoyaleStökk Arnar Logi
- Matur: Snitsel, Snöggsteiktur lambavöðvi
- Drykkir: Kók, Gin og tónik,
- Körfuboltaleikmenn: Dwyane Wade, Penny Hardaway
– Hljómsveitir: úff langt síðan ég hef pælt í því! Deftones og Radiohead
– Leikarar: Matt Damon
– Sjónvarpsþættir: Friends, Simpsons, Prison Break, 24
– Stelling: Hundur
– Klámmyndaleikkona: Heather Sheldon… er hún til?? Ohh I admit it ég á enga, þekki heldur enga!!
– Rappari: Run DMC
– Skyndibitastaður: KFC
– Dansari í Brokey: Hemmi lærði víst dans og dansaði í Ísland í bítið eða eitthvað shit
– Körfuboltabúningur allra tíma: Allir gömlu búningarnir með stuttu stuttbuxunum.
– Borg: Er alltaf í London skilurru, er alveg byrjaður að fíla hana. Segi því London.
– Vefsíða: www.dontbeamenacetosouthcentralwhiledrinkingyourjuiceinthehood.com
– Frægar kellingar sem þú vilt bóna: Jessica Alba, Jessica Alba, Heather Locklear, Elisha Cuthbert, Scarlett Johannsson.
Hvað viltu frekar og af hverju?
– Ass or tits: Ass… hitt er of obvious og lýtur oftast betur út í fötum en án fata.
– Kjartan eða Hemma: Kjartan, Hemmi er of mislyndur og svo lék hann mig líka ílla í Arnar Logi story, part 2. Hann var samt geðveikur í part 1.
– Bjór eða sterkt: Sterkt, er orðinn svo latur að drekka að ég næ því kannski að verða fullur ef ég drekk nógu sterkt.
– Seinfeld eða Friends: Friends, get samt ekkert sett út á Seinfeld!
– Transformers eða Thundercats: Transformers ekki spurning, þoli ekki þegar menn eru með ljós upp í loftið og eitthvað ”thunder-thunder-thundercats”
– Prumpa hátt með engri lykt eða prumpa lágt með geðveikri lykt: Lágt með lykt… þó ég haldi að ég sé frekar fallegur að innan.
– Hökutopp eða mottu: Motta, því hún fer mér mikið-mikið-mikið verr.
– Star Wars eða Lord Of The Rings: Lord Of The Rings, bara til að segja eitthvað… fíla StarWars líka.
– 70′s, 80′s eða 90′s : 70’s, af því allir aðrir eiga eftir að segja 80’s. og bara líka af því að pabbi hlustaði meira á tónlist frá 70’s og ég ætla verða alveg eins og hann.
– Oliver, Prikið, Hverfisbarinn eða Vegamót: Ekki neinn, þoli ekki að fara niður í bæ lengur. Partýstaður heima hjá einhverjum er lang skemmtilegast.
Eitthvað að lokum? Þetta eru 20 mínútur af minni ævi sem ég fæ aldrei aftur.
Tvífari: Jónsi

Nýleg ummæli