Prófíllinn á Hjalta
1. Nafn (fullt nafn og viðurnefni): Hjalti Kristinsson aka Múri, Múresan og the artist formerly known as Coach Ugly
2. Aldur og fæðingarstaður: 26 ára, fæddur í höfuðstað Snæfellsness, Stykkishólmi
3. Hæð og þyngd: tæpir 195cm og sirka 110 helvítis kíló (vöðvar eru þyngri en fita!)
4. Staða: Einhver ódýr týpa af miðherja með killer 3-point skot og ótrúlegt auga fyrir showtime stoðsendingum
5. Hjúskaparstaða: Á pikkföstu með læknanemanum Helgu Maríu
6. Áhugamál: íþróttir, skemmta sér með vinunum, kvikmyndir bæði góðar og mjög slæmar eins og kvikmyndasafnið mitt gefur til kynna, tónlist, safna nba myndum og að láta eins og fífl
7. Fallegasti meðlimur Brokey: Þetta eru svo sætir strákar að ég get ekki gert upp á milli þeirra. Ég hef nú samt alltaf verið frekar heitur fyrir Hemma. Ég er með örvhentra-fetish.
8. Ruglaðasti meðlimur Brokey: Laugi er náttúrulega alvarlega skemmdur og fær hann því mitt atkvæði.
9. Stærsta stund ferils þíns: Það er erfitt að gera upp á milli þess að vinna firmakeppnina í Hólminum með Þórsnesi í kringum 2002 og að verða RVK-meistari B-liða með Brokey 2005. Vil þakka KKÍ kærlega til hamingju fyrir að láta okkur EKKI vita af næsta RVK-móti þar sem við stefndum á re-peat!
10. Þinn besti leikur með Brokey: Minn besti leikur var í tapleik! á móti Árvaki á fyrsta tímabilinu í Brokey, 17 stig og 29 fráköst
11. Best klæddi leikmaður Brokey: Frikki og Reynar eru helvíti fínir í tauinu finnst mér, ekki það að hinir séu eitthvað illa til fara.
12. Hvað gerir þú fyrir liðið (utan jafnt sem innan vallar): Innan vallar tek ég fráköst, er fyrir í sókninni og tek þriggja stiga skot og fátt annað. Utan vallar held ég flest öll partýin og reyni að skemmta liðsfélögunum á æfingum.
13. Fyrri lið: Snæfell, Mostri, Ungmennafélagið Reynir eða hvað það hét í Grundarfirði og svo Þórsnes og Bónus í firmakeppnum.
14. Hvernig bíl áttu og hefur átt í gegnum tíðina: Er á Volkswagen Passat 2001 eða 2002 árgerð. Átti svo áður Volkswagen Vento sem Kiddó frændi fékk á eftir mér. Honum tókst að skemma hann á einum mánuði með því að láta keyra á sig og svo féll seinna snjóflóð af Egilshöll á húddið og skemmdi hann alveg. Hrikalega fyndið!
15. Ef þú gætir verið einhver fræg manneskja í einn dag, hver væri það og af hverju: Tiger Woods. Þá gæti ég komist að ástæðunni af hverju hann er alltaf með fýlusvip. Þó að maður eigi að vera professional þegar maður er að spila og allt það, en þegar þú ert með 7 milljarða á ári í laun, ert bestur fyrr og síðar í þínu fagi og átt flotta ljóshærða sænska kellingu bíðandi eftir þér heima þá áttu að vera brosandi allan tímann. Þó að helvítis golfið gangi illa!
16. Hver er mesti djammarinn í Brokey: Sennilega ég….og svo Frikki í 2. sæti
17. Mottó/lífsreglur: Aldrei að sparka í nýskitinn kúk í heitu veðri / koma fram við aðra eins og þú vilt að sé komið fram við….ZZZZZzzzzZZZZzzzZZZ
18. Hvaða leikmaður Brokey heldurðu að sé bestur í rúminu og af hverju: Eftir að Frikki sagði mér hvernig “Screw stellingin” virkaði, þá er ég með það alveg á hreinu að það er hann.
19. Hvað grætir þig? Þegar Macaulay Culkin deyr í myndinni My Girl (ef einhver grætur ekki yfir því, þá hefur sú manneskja ekki tilfinningar!) og sú staðreynd að Arrested Development hætti í miðri 3. seríu! á meðan According to Jim-serían er komin í 7 seríur og kannski ekki hætt og Dharma and Greg voru heilar 5 fokking seríur! Andskotans heimska Ameríka!
20. Hvaða lag lýsir þér best (rökstyðja með textabroti): Smack my Bitch up með Prodigy, spyrjið bara kærustuna. Textabrot: “Smack my bitch up! HEY!”
Uppáhalds?
- Kvikmyndir: Predator, Friday, Snatch, Lock, stock and two Smoking Barrels, Phantom of the Mall (á hana loksins á VHS), The Goonies, Big Trouble in Little China, Neverending Story, Dirty Work og margar margar margar fleiri.
- Matur: djúpsteiktur fiskur, flest allur matur sem er í boði um jólahátíðina er alveg rosalega góður líka. Svo gerir kellingin hrikalega fínt pasta.
- Drykkir: kók, mjólk, kókómjólk og um helgar bjór og vodki í orkudrykk
- Körfuboltaleikmenn: Magic Johnson, Hakeem Olajuwon, Dominique Wilkins, Genadí Peregud, Terry Acox, Nub Rexman, Manute Bol, Uwe Blab og Dolf Kreber Bobkempf af gömlu hetjunum. Í dag eru það Dwight Howard, Josh Smith og fleiri sem maður er að fíla í dag og ekki má gleyma Nonna Mæju.
- Hljómsveitir: The Chemical Brothers, The Prodigy, Deftones, Smashing Pumpkins, Queen, Wham, Duran Duran, GusGus og margar margar fleiri
- Leikarar: Arnold Schwarzenegger, Jim Carrey, Will Ferrell, Len Lesser (uncle leo í seinfeld),
- Sjónvarpsþættir: Arrested Development, Chappelle´s Show, Kenny vs Spenny, Flight of the Conchords, The Simpsons, Family Guy, How to look good naked, Allt í drasli og margt fleira
- Stelling: Fer eftir stað og stund….voff voff
- Klámmyndaleikkona: Julia Bond er í lagi, Birgitta Haukdal look-a-like
- Rappari: Það hefur enginn tærnar þar sem Snow hefur hælana sem sló í gegn með laginu Informer.
- Skyndibitastaður: Nonnabiti og svo Einar Með Öllu heima í Hólmi.
- Dansari í Brokey: Eftir að Árni fór til Lundúna að læra eitthvað, þá er Frikki langbesti dansarinn. Að minnsta kosti hefur enginn reynt að toppa hann.
- Körfuboltabúningur allra tíma: Rauður Atlanta Hawks bolur í kringum 1988, eins og þegar Dominique Wilkins átti að vinna troðslukeppnina það ár. Helvítis Jordan og andskotans bull!
- Borg: Hef ekki ferðast mikið til útlanda, en Luxembourg virkar vel á mig.
- Vefsíða: www.trigger.blog.is
- Frægar kellingar sem þú vilt bóna: Monica Bellucci (tékkið á henni í Ástríkur og Kleópatra! Damn!), Jessica Biel, Adrianna Lima, stelpan sem leikur Pepper í Neighbours og Jessica Alba
Hvað viltu frekar og af hverju?
- Ass or tits: Hef verið ass-man síðan Oprah Winfrey byrjaði á Stöð 2
- Kjartan eða Hemma: Hef verið ástfanginn af Hemma síðan hann lamdi mig í hausinn með fötu á leikskólanum. Sorrí Kjartan. Þú ert samt topp gaur.
- Bjór eða sterkt: Byrja á bjór og enda svo í sterku virkar oft vel.
- Seinfeld eða Friends: SEINFELD!!! Seinustu seríurnar af Friends breyttust í sápuóperu og viðbjóð.
- Transformers eða Thundercats: Thundercats teiknimyndirnar og Transformers leikföngin.
- Prumpa hátt með engri lykt eða prumpa lágt með geðveikri lykt: Prumpa hátt með félögunum og prumpa lágt með geðveikri lykt undir sæng með kellingunni.
- Hökutopp eða mottu: Ég get hvorugu safnað án þess að líta út eins og fífl. En ég myndi frekar velja mottu. Mottur eru töff.
- Star Wars eða Lord Of The Rings: Er búinn að vera Star Wars-fan síðan ég sá Return of the Jedi 1988.
- 70′s, 80′s eða 90′s : 80s maður! Hafið þið séð einhvern óhamingjusaman á þeim tíma? Lélega kvikmynd? Heyrt lélegt lag? Ég held ekki! Möllett og Wham er málið!
- Oliver, Prikið, Hverfisbarinn eða Vegamót: Oliver með Hemma, Prikið með Bjartmari, Hverfis með Frikka. Hef aldrei fílað Vegamót.
Nýleg ummæli