Reglur og sektir

Eftirfarandi eru reglur Brokey Basket Club
Reglur þessar staðfestir leikmaður með undirritun samnings

Æfingagjöld fyrir heilt tímabil eru kr 30.000. Leikmaður fær afhentan búning eftir að hafa borgað æfingagjaldið.

Leikmanni er skylt að mæta á allar æfingar og leiki liðsins.

Rukkað verður vægt gjald fyrir lélega ástundun leikmanna Brokey, hvort sem er í leikjum eða æfingum. Sekt hvers og eins verður tekin saman og innheimt fyrir partý liðsins sem vonandi verða fleiri í ár heldur en síðasta tímabil. Afsakanir verða aðhlátursefni liðsfélaganna og verða að engu hafðar. Auðvitað eigum við flestir, ef ekki allir, eftir að fá einhverjar sektir og það þýðir ekkert að væla ef menn komast einfaldlega ekki, þá er það bara sekt og málið dautt.

  1. Gjald fyrir að mæta ekki á æfingu og láta ekki vita = 500 kr.
  2. Gjald fyrir að mæta ekki á æfingu en láta vita (láta vita amk 2 klst fyrir æfingu) = 200 kr. *
  3. Gjald fyrir að mæta of seint á æfingu (réttur tími er að vera kominn í föt og tilbúinn til að fara inn á þeim tíma er æfingin byrjar ) = 150 kr.
  4. Gjald fyrir að mæta tilbúin á æfingu/leik og á réttum tíma = frítt
  5. Sekt fyrir að mæta ekki í leiki og láta ekki vita = 1.500 kr.
  6. Sekt fyrir að mæta ekki í leik en láta vita (amk 4 klst fyrir leik) = 300 kr. **
  7. Sekt fyrir að mæta of seint í leiki (amk 20 min í upphitun er réttur tími) = 250 kr.
  8. Sekt fyrir að mæta þunnur í leiki :) = frítt ( þetta væri versta regla í heimi)

* Láti leikmaður ekki vita 2 klst fyrir æfingu verður sektin skráð eftir lið 1.
** Láti leikmaður ekki vita 4 klst fyrir leik verður sektin skráð eftir lið 5.

Verði leikmaður kominn með uppsafnaðar ógreiddar sektir kr. 2.000 fær sá leikmaður ekki leikheimild fyrr en sektin hefur verið greidd.
Allar upphæðirnar verða teknar til endurskoðunar teljist þess þörf og menn t.d. eru að mæta ítrekað seint í leiki eða æfingar. Þá verða upphæðirnar einfaldlega hækkaðar. Einnig verður fleiri flokkum bætt við ef þurfa þykir.

Sérstök skipuð nefnd mun fara með málefni meiddra leikmanna og hlut þeirra í gjöldum.

————————————————————————————————————————————————

Leikmannasamningur Brokey BC

 

Með samningi þessum er komið á skriflegt samkomulag milli undirritaðs leikmanns og Körfuknattleiksfélagsins Brokey Basket Club. (BBC)

 

Með samningi þessum skuldbindur leikmaður sig til að fara í einu og öllu eftir reglum liðsins. Fari leikmaður ekki eftir þessum reglum getur hann átt von á því að vera rekinn úr liðinu með litlum sem engum fyrirvara án þess að eiga rétt á endurgreiðslu á fyrirframgreiddum æfingagjöldum.

 

Samningur þessi gildir fyrir körfuboltatímabilið 2008-2009. Æfingagjöld fyrir tímabilið verða 30.000 kr. Leikmaður fær aðeins afhentan búning og leikheimild frá formanni og þjálfara eftir að hafa greitt æfingagjöld og mætt á amk 5 æfingar.

 

Æfingar verða 2 sinnum í viku og frekari útlystingar á mætingu á þessar æfingar eru í reglum liðsins. Allar frekari upplýsingar er hægt að nálgast á www.brokeybasket.com.

 

 

 

 

 

 

 

Með undirskrift sinni staðfestir leikmaður að hann hafi kynnt sér reglur liðsins (bæði í samningi þessum og á heimasíðu liðsins) og er tilbúinn að greiða þær sektir sem til kunna að falla á meðan tímabili stendur. Einnig staðfestir leikmaður að hann hafi lesið samning þennan og samþykki hann með fyrirvara um breytingar.

 

 

  1. Popparinn
    6.03.2008 klukkan 11:55 | #1

    HA? er hægt að setja inn svar hérna?

  2. Ólafur
    6.03.2008 klukkan 21:12 | #2

    Þú ræður því þegar þú býrð til síðuna (eða einhverja færslu). Það er valmöguleiki í einhverju boxinu hægra megin hvort þú leyfir ummæli eða ekki. Það er kannski sniðugra að taka það af hérna, þú mátt gera það ef þú vilt.

  1. No trackbacks yet.
Ummæli eru ekki leyfð.
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.